Myndir
Myndir - gamalt
Blogg rúnturinn
Auður sys
Vigdís Eva
Gummi Palli
María
Lára Kristín
Lára danska
Sigga Víðis
Vala
Harpa Hrönn
Francis
Anna
MySpace
Ingvi Stress
Litla fólkið
Emma Ýrr
Iðunn Ragnarsdóttir
Iðunn Ingólfsdóttir
Kári
Áslaug Lilja
Benjamín Árni
Frosti og Fanney
Tómas Ari Ingvason
More Peoples
Laugabeib
Palli
sArA tAlar
Choir Peoples
Gleðikórinn
Erna María
Harpa Hrund
Kynbomban Ásdís
Anna Ósk chick
Hillside
Tell me
Holy Helgi
Göj göj
Hafdís
Hlín
Linda Lóla pönk
Karen
Birna
fleiri kórblogg
Eldri færslur
apríl 14, 2002 apríl 21, 2002 apríl 28, 2002 maí 05, 2002 maí 12, 2002 maí 19, 2002 júní 02, 2002 júní 09, 2002 júní 16, 2002 júní 23, 2002 júní 30, 2002 júlí 07, 2002 júlí 14, 2002 júlí 21, 2002 júlí 28, 2002 ágúst 04, 2002 ágúst 11, 2002 ágúst 18, 2002 ágúst 25, 2002 september 01, 2002 september 08, 2002 september 15, 2002 september 22, 2002 september 29, 2002 október 06, 2002 október 13, 2002 október 20, 2002 október 27, 2002 nóvember 03, 2002 nóvember 10, 2002 nóvember 17, 2002 nóvember 24, 2002 desember 01, 2002 desember 08, 2002 desember 15, 2002 desember 22, 2002 desember 29, 2002 janúar 05, 2003 janúar 12, 2003 janúar 19, 2003 janúar 26, 2003 febrúar 02, 2003 febrúar 09, 2003 febrúar 16, 2003 febrúar 23, 2003 mars 02, 2003 mars 09, 2003 mars 16, 2003 mars 23, 2003 mars 30, 2003 apríl 06, 2003 apríl 13, 2003 apríl 20, 2003 apríl 27, 2003 maí 04, 2003 maí 11, 2003 maí 18, 2003 maí 25, 2003 júní 01, 2003 júní 08, 2003 júní 15, 2003 júní 22, 2003 júní 29, 2003 júlí 06, 2003 júlí 13, 2003 júlí 20, 2003 júlí 27, 2003 ágúst 03, 2003 ágúst 10, 2003 ágúst 17, 2003 ágúst 24, 2003 ágúst 31, 2003 september 07, 2003 september 14, 2003 september 21, 2003 september 28, 2003 október 05, 2003 október 12, 2003 október 19, 2003 október 26, 2003 nóvember 02, 2003 nóvember 09, 2003 nóvember 16, 2003 nóvember 23, 2003 nóvember 30, 2003 desember 07, 2003 desember 14, 2003 desember 21, 2003 desember 28, 2003 janúar 04, 2004 janúar 11, 2004 janúar 18, 2004 janúar 25, 2004 febrúar 01, 2004 febrúar 08, 2004 febrúar 15, 2004 febrúar 22, 2004 febrúar 29, 2004 mars 07, 2004 mars 21, 2004 mars 28, 2004 apríl 04, 2004 apríl 11, 2004 apríl 18, 2004 apríl 25, 2004 maí 02, 2004 maí 09, 2004 maí 16, 2004 maí 30, 2004 júní 06, 2004 júní 13, 2004 júní 20, 2004 júní 27, 2004 júlí 04, 2004 júlí 11, 2004 júlí 18, 2004 ágúst 15, 2004 ágúst 22, 2004 ágúst 29, 2004 september 05, 2004 september 12, 2004 september 19, 2004 september 26, 2004 október 03, 2004 október 10, 2004 október 17, 2004 október 24, 2004 október 31, 2004 nóvember 07, 2004 nóvember 14, 2004 nóvember 21, 2004 nóvember 28, 2004 desember 05, 2004 desember 12, 2004 desember 26, 2004 janúar 09, 2005 janúar 16, 2005 janúar 23, 2005 janúar 30, 2005 febrúar 06, 2005 febrúar 13, 2005 febrúar 20, 2005 febrúar 27, 2005 mars 06, 2005 mars 13, 2005 mars 20, 2005 mars 27, 2005 apríl 03, 2005 apríl 10, 2005 apríl 17, 2005 apríl 24, 2005 maí 01, 2005 maí 08, 2005 maí 15, 2005 maí 22, 2005 maí 29, 2005 júní 05, 2005 júní 12, 2005 júní 19, 2005 júní 26, 2005 júlí 03, 2005 júlí 10, 2005 júlí 17, 2005 júlí 24, 2005 júlí 31, 2005 ágúst 07, 2005 ágúst 14, 2005 ágúst 21, 2005 ágúst 28, 2005 september 04, 2005 september 11, 2005 september 18, 2005 september 25, 2005 október 02, 2005 október 09, 2005 október 16, 2005 október 23, 2005 október 30, 2005 nóvember 06, 2005 nóvember 13, 2005 nóvember 20, 2005 nóvember 27, 2005 desember 04, 2005 desember 11, 2005 desember 18, 2005 janúar 15, 2006 janúar 22, 2006 janúar 29, 2006 febrúar 05, 2006 febrúar 12, 2006 febrúar 19, 2006 febrúar 26, 2006 mars 05, 2006 mars 12, 2006 mars 26, 2006 apríl 02, 2006 apríl 09, 2006 apríl 16, 2006 apríl 23, 2006 maí 07, 2006 maí 14, 2006 maí 28, 2006 júní 04, 2006 júní 11, 2006 júní 18, 2006 júní 25, 2006 júlí 02, 2006 júlí 09, 2006 júlí 16, 2006 júlí 23, 2006 júlí 30, 2006 ágúst 06, 2006 ágúst 13, 2006 ágúst 20, 2006 ágúst 27, 2006 september 03, 2006 september 10, 2006 september 17, 2006 október 01, 2006 október 08, 2006 október 15, 2006 október 22, 2006 nóvember 05, 2006 nóvember 12, 2006 nóvember 26, 2006 desember 03, 2006 desember 10, 2006 desember 17, 2006 desember 24, 2006 janúar 07, 2007 janúar 14, 2007 janúar 21, 2007 febrúar 04, 2007 febrúar 11, 2007 febrúar 18, 2007 mars 04, 2007 mars 11, 2007 mars 25, 2007 apríl 29, 2007 maí 06, 2007 maí 13, 2007 maí 27, 2007 júní 03, 2007 júní 10, 2007 júní 17, 2007 júlí 22, 2007 júlí 29, 2007 ágúst 19, 2007 september 02, 2007 september 09, 2007 september 23, 2007 september 30, 2007 október 07, 2007 október 28, 2007 nóvember 04, 2007 nóvember 11, 2007 nóvember 25, 2007 desember 02, 2007 desember 16, 2007 janúar 27, 2008 febrúar 03, 2008 febrúar 10, 2008 febrúar 24, 2008 mars 09, 2008 mars 16, 2008 mars 23, 2008 mars 30, 2008 apríl 06, 2008 maí 04, 2008 maí 11, 2008 maí 18, 2008 maí 25, 2008 júní 01, 2008 júní 15, 2008 júní 22, 2008 ágúst 03, 2008 ágúst 17, 2008
|
föstudagur, september 12
Bjallaði í Mínu, ætla að skella mér til hennar og við bjórum okkur aðeins upp áður en við skellum okkur í kórafjör... Alltaf að spara, alltaf að spara... ætli verði tilboð á barnum?
StelpaLitla// Ýrr @ 19:33
Er þetta partur af programmet
Tíminn líður hratt, vikan flýgur burt og manni finnst maður ekki koma neinu í verk!! Já, það er erfitt að vera mamma. Ég hef meiri virðingu fyrir mömmu minni núna, bara eftir að hafa verið að passa í eina viku!!! Mun hér eftir kalla hana ofur-Hlíf. Skólinn er semsagt kominn á fullt og nóg að gera þar og ég verð að hafa mig alla við ef ég á ekki að dragast afturúr!! Jæks. Sem betur fer finnst mér þetta ofur-gaman! Svo kannski get ég verið ofur-kona eftir allt saman... En það er þó ekki það mikið að gera að ég gaf mér tíma til að horfa á Leiðarljós áðan...svo kannski þarf ég ekki að örvænta...
Til að verða ekki ofur-ábyrg ætla ég að skella mér í kórpartý í kvöld. Stefnt er á Gauk á Stöng og á að bjóða nýja meðlimi velkomna í hópinn. Vonandi mæta sem flestir. Þetta verður stuð - allavega ef þetta er alvöru kórfólk! Ætli það sé ekki með kóra eins og skátana bara, mesta drykkjufólkið þar. Víí. Verður þá lítið um lærdóm á morgun, grunar mig. Spurning um að taka sunnudaginn með trompi. Segjum það allavega núna.
StelpaLitla// Ýrr @ 18:07
miðvikudagur, september 10
Jæja, einbeitingin í dag er allt önnur, loksins eitthvað að gerast hérna.
De Morgans lögmál
Ekki (P og Q) = (ekki P) eða (ekki Q)
Ekki (P eða Q)=(ekki P) og (ekki Q)
Ekki ekki málið = málið! Já já. Það er nú heila málið. Missti samt af Leiðarljósi í gær, ohhhhh. Sé hvort ég nái ekki einum þætti til viðbótar í vikunni. Maður verður nú að vera soldið "inn".
Mig langar í bíó. Ég trúi ekki að maður ætli ekki að komast á kvikmyndahátíð! En þar sem ég er skyndi-mamma þá verður sennilega lítið úr því. Nýta svo bara helgina í að læra. Ekkert djamm...jah nema það verði vísindaferð! ;)
StelpaLitla// Ýrr @ 15:15
mánudagur, september 8
Gull armband sem lá í kúki inni á skrifstofu, var með tannstein í eyrnasneplunum og las um það á skjá í strætóskýlinu....
Þetta kallar maður alvöru námstækni sko! ....við Gunnar eru alveg að brillera hérna. Held ég sé bara búin að EKKI lesa yfir mig.
StelpaLitla// Ýrr @ 22:10
Ég sé um hestinn, þú sérð um hnakkinn...
...er af einhverjum ástæðum með þetta lag á heilanum. Stupid song on brain, not good. Stop it. Stop it I said .... STOP IT!!! URrrrgh.
Er semsagt í skólanum að þykjast læra, en er alveg HRIKALEGA eirðarlaus...úfff.
P(k+1) er yrðingin "Summan 1+2+3+...+k+(k+1) er jafnt og (k+1)((k+1)+1)/2
Er k(k+1) / 2 + (k+1) jafnt og (k+1)((k+1)+1) / 2 ?
og svariði nú!
Svo er ég svo þyrst, að ég er alvarlega farin að íhuga að fara niður í sjálfsala og kaupa mér gosflösku bara til að tæma hana og fylla með vatni. Ég gæti svosem náð mér í flösku í ruslinu í staðinn og skolað hana...moahaha. Einhvern veginn er það bara ekki freistandi. Freistandi er hins vegar að fara bara heim og horfa á sjónvarpið..hummm... En svo er bara ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu. Mikið hlakka ég til þegar Survivor byrjar aftur, jei jei. KLASSA sjónvarpsefni!
...og talandi um klassa sjónvarpsefni, horfði einmitt á Leiðarljós í dag. Og hvað er fólk að segja að ekkert gerist í þessum þáttum??? Jesús minn. Eleni bara ólétt eftir Frank, en Alan Michael skipti út pillunum hennar fyrir sykurpillum til að gera hana ólétta því hann vildi ekki missa hana. Maureen DÁIN og Ed og Michelle alveg í rusli, komin ný leikkona fyrir Mindy, Alexandra var tilkynnt dauð í þættinum í dag - bara ALLT að gerast!! Jiiiii. Verð að fylgjast betur með þessu.
StelpaLitla// Ýrr @ 21:28
sunnudagur, september 7
Sunnudagsfærslan... Þórsmerkurljóð
Skellti mér barasta í Þórsmörk á föstudag! Þetta var boðsferð með vinnunni og ég var búin að hlakka mikið til að fara en vaknaði svo á föstudaginn með magaverki dauðans og var FREKAR slöpp. Fór því ekki í skólann en lá þess heldur og vorkenndi sjálfri mér þar sem ég sá fram á það að komast ekki :( Um eitt leytið um daginn var mér hins vegar farið að líða örlítið betur, og þegar Hrönn samstarfskona mín hringdi og bóksaflega skipaði mér að koma þá ákvað ég að vera ekki aumingi, pakkaði í flýti, skellti mér í Ríkið og viti menn! Eftir fyrsta bjór í rútunni var mín orðin gífurlega hress ;)
Byrjuðum á að rölta upp í Sönghelli þegar í Húsadal var komið. Það er nú svoleiðis með mig að ég hef nú aldrei verið neitt sérstaklega hrifin af göngutúrum. Sérstaklega ekki þegar á að labba, bara til þess að labba en ekki verið að fara neitt sérstakt. Kannski er þetta bara vegna þess hve lélegu formi ég er í...ég veit ekki. En við fórum þetta nú samt, í helli rigningu og ég á strigaskóm meðan allir hinir voru í hátækni gönguskóm. En viti menn, þetta var bara hin fínasta ganga og ég gerði mér það að marki að komast þurr á fótunum til baka. Sem tókst að sjálfsögðu. Í hellinum við fagran foss var drukkinn "Úlfur" (íslenskt hot´n sweet) en ég afþakkaði sopann þar sem ég ofnotaði einmitt Hot´n Sweet einhvern tíma í öðrum bekk og hef ekki getað drukkið síðan, eða einu sinni fundið lyktina af án þess að kúgast...jökk. Þetta er þó að lagast, og nú get ég þefað af þessari lakkrísdrullu án þess að fá ælu upp í háls, svo þetta er allt að koma...
Fuglinn segir bí bí bí,
bí bí segir Stína,
Kveldúlfur er kominn í
kellinguna mína
Þegar til baka var komið í Húsadal beið okkur dýrindis matur frá Pottinum og pönnunni, bjór og rauðvín. Við átum og drukkum og sungum og hlógum og fórum á trúnó. Sumir skelltu sér í gufu en ég lét mig nú hafa það að sleppa því (og drakk bara þeim meiri bjór í staðinn). Kokkurinn á staðnum fór að gera sig til við einhverjar okkar og sagði einmitt skemmtilega sögu um það þegar hann var í Köben með 20 íslenskar druslur á sitt hvorri löppinni á eftir sér. Þær bara létu hann ekki í friði hann var svo sexí. Svo komu 20 tyrkir með kuta (já, kuta)og horfðu á hann drápsaugum... hahahahah. Furðulegur gaur. Þarf ekki að taka það fram að við vorum auðvitað heillaðar af hetjuskap hans og átti hann hug okkar allan þetta kvöld. Ehemm.
Ég tók að sjálfsögðu smá línudanskennslu við mikinn fögnuð viðstaddra. Mér var bent á að ég væri einstaklega lagin við að kenna línudans, og því hef ég einsett mér að vera línudanskennari í aukastundum, svona þegar ég verð orðin tölvunörd að atvinnu. Auður, eigum við að stofna dansskóla?
Daginn eftir gengum við svo frá Húsadal yfir í Langadal (um klukkutíma ganga) sem var bara ágætt, enda náttúrufegurðin þarna í Þórsmörk alveg ógurleg!! Hef sjaldan vitað annað eins. Þar sem þetta var ein af þessum göngum, bara svona til að ganga, þá ímyndaði ég mér bara að ég væri Hobbiti í mikilvægri sendiför með hring...og að á leiðarenda yrði nóg af bjór og varð gangan mun skemmtilegri fyrir vikið. Reyndar er ég að ýkja, ég fór þarna fram úr sjálfri mér og fannst bara gaman að labba, þó það væri eini tilgangurinn með förinni. Þannig að ég hef skipt um skoðun og finnst þetta alltílæ - svo lengi sem það er á svona fallegum stað. Enda þá tilgangurinn orðinn að skoða náttúrufegurð, en ekki bara að labba. Jæja, fólk var þó í misgóðu ástandi eftir kvöldið áður og því dreifðist eitthvað úr hópnum á leiðinni... Í Langadal var rúta sem ferjaði okkur yfir í Bása þar sem voru KK og Maggi Eiríks með tónleika - allgjör snilld! Um leið og þeir byrjuð að spila birtist sólin (ótrúlega táknrænt) og þarna var fullt af fólki í góðum fíling sem gaulaði með. Þvílík upplifun. Enda er ég mikill aðdáandi. Svo er maður svo hrifnæmur líka að lá við að maður táraðist við sum lögin. Já. Ég er ekki frá því. Eftir tónleikana lá leiðin svo aftur í bæinn með smá sukkfæðis-stoppi á Hvolsvelli auðvitað. Frábær ferð, sá ekki eftir því að hafa farið!!
En nú tekur alvaran við. Mamms og pabbs farin til Canada á ráðstefnu í 12 daga, og við systurnar heima að passa. Ekki bætir um skák að Björn greyið fékk sýkingu í hnéð og þarf að vera með spelkur og á sýklalyfjum litli snúllinn, svo mamma var nú eitthvað smeyk við að fara og er búin að hringja og sms-a eins og hún hafi aldrei gert annað... Ég er samt með svo mikinn sannfæringarkraft og búin að fullvissa hana um að allt sé í gúddí hér.
Jæja, þá er að hafa sig til fyrir Stórmynd Grísla. Bið ykkur vel að lifa.
StelpaLitla// Ýrr @ 11:42
|
Vondulagakeppnin
1. Basshunter: Boten Anna
2.David Hasselhoff: Jump In My Car
3.Mervi Vesala: I wanna love you tender
4.Rick Dees: Disco Duck
5.NKOTB: Step by step
6.Tommy Seebach band: Apache
7.Framsóknarsamba
8.Dennis Madalone: America We Stand As One
9.Daler Mehndi: Tunak Tunak Tun
10. PWC og KPMG
helstu einkenni tvíbura:
Léttleiki, heiðríkja og bjartsýni.
Hressir, vingjarnlegir, málgefnir, forvitnir,
vakandi, gott minni
koma oft vel fyrir sig orði,
eirðarlausir, félagslyndir, fjölhæfir.
Hafa þörf fyrir fjölbreytni,
tvískiptir, óstundvísir, glaðlyndir, raunsæir,
stríðnir, fróðleiksfúsir, jákvæðir, gamansamir,
eiga til að lofa upp í ermina á sér,
hæfileiki til að gera margt á sama tíma.
Sneddí linkar
Sellan.is
Baggalutur.is
Weebl and Bob
Háskólakór
Friendster.com
Leikir
dvergakast
gull
leikur
bubbli
leikur
peningaleikur
örkin
hans nóa
|