| 
        
            
               MyndirMyndir - gamalt
 
Blogg rúnturinnAuður sys
 Vigdís Eva
 Gummi Palli
 María
 Lára Kristín
 Lára danska
 Sigga Víðis
 Vala
 Harpa Hrönn
 Francis
 Anna
 MySpace
 Ingvi Stress
 
 
Litla fólkiðEmma Ýrr
 Iðunn Ragnarsdóttir
 Iðunn Ingólfsdóttir
 Kári
 Áslaug Lilja
 Benjamín Árni
 Frosti og Fanney
 Tómas Ari Ingvason
 
 
More PeoplesLaugabeib
 Palli
 sArA tAlar
 
 
Choir PeoplesEldri færslurGleðikórinn
 Erna María
 Harpa Hrund
 Kynbomban Ásdís
 Anna Ósk chick
 Hillside
 Tell me
 Holy Helgi
 Göj göj
 Hafdís
 Hlín
 Linda Lóla pönk
 Karen
 Birna
 fleiri kórblogg
 
 
 apríl 14, 2002
 apríl 21, 2002
 apríl 28, 2002
 maí 05, 2002
 maí 12, 2002
 maí 19, 2002
 júní 02, 2002
 júní 09, 2002
 júní 16, 2002
 júní 23, 2002
 júní 30, 2002
 júlí 07, 2002
 júlí 14, 2002
 júlí 21, 2002
 júlí 28, 2002
 ágúst 04, 2002
 ágúst 11, 2002
 ágúst 18, 2002
 ágúst 25, 2002
 september 01, 2002
 september 08, 2002
 september 15, 2002
 september 22, 2002
 september 29, 2002
 október 06, 2002
 október 13, 2002
 október 20, 2002
 október 27, 2002
 nóvember 03, 2002
 nóvember 10, 2002
 nóvember 17, 2002
 nóvember 24, 2002
 desember 01, 2002
 desember 08, 2002
 desember 15, 2002
 desember 22, 2002
 desember 29, 2002
 janúar 05, 2003
 janúar 12, 2003
 janúar 19, 2003
 janúar 26, 2003
 febrúar 02, 2003
 febrúar 09, 2003
 febrúar 16, 2003
 febrúar 23, 2003
 mars 02, 2003
 mars 09, 2003
 mars 16, 2003
 mars 23, 2003
 mars 30, 2003
 apríl 06, 2003
 apríl 13, 2003
 apríl 20, 2003
 apríl 27, 2003
 maí 04, 2003
 maí 11, 2003
 maí 18, 2003
 maí 25, 2003
 júní 01, 2003
 júní 08, 2003
 júní 15, 2003
 júní 22, 2003
 júní 29, 2003
 júlí 06, 2003
 júlí 13, 2003
 júlí 20, 2003
 júlí 27, 2003
 ágúst 03, 2003
 ágúst 10, 2003
 ágúst 17, 2003
 ágúst 24, 2003
 ágúst 31, 2003
 september 07, 2003
 september 14, 2003
 september 21, 2003
 september 28, 2003
 október 05, 2003
 október 12, 2003
 október 19, 2003
 október 26, 2003
 nóvember 02, 2003
 nóvember 09, 2003
 nóvember 16, 2003
 nóvember 23, 2003
 nóvember 30, 2003
 desember 07, 2003
 desember 14, 2003
 desember 21, 2003
 desember 28, 2003
 janúar 04, 2004
 janúar 11, 2004
 janúar 18, 2004
 janúar 25, 2004
 febrúar 01, 2004
 febrúar 08, 2004
 febrúar 15, 2004
 febrúar 22, 2004
 febrúar 29, 2004
 mars 07, 2004
 mars 21, 2004
 mars 28, 2004
 apríl 04, 2004
 apríl 11, 2004
 apríl 18, 2004
 apríl 25, 2004
 maí 02, 2004
 maí 09, 2004
 maí 16, 2004
 maí 30, 2004
 júní 06, 2004
 júní 13, 2004
 júní 20, 2004
 júní 27, 2004
 júlí 04, 2004
 júlí 11, 2004
 júlí 18, 2004
 ágúst 15, 2004
 ágúst 22, 2004
 ágúst 29, 2004
 september 05, 2004
 september 12, 2004
 september 19, 2004
 september 26, 2004
 október 03, 2004
 október 10, 2004
 október 17, 2004
 október 24, 2004
 október 31, 2004
 nóvember 07, 2004
 nóvember 14, 2004
 nóvember 21, 2004
 nóvember 28, 2004
 desember 05, 2004
 desember 12, 2004
 desember 26, 2004
 janúar 09, 2005
 janúar 16, 2005
 janúar 23, 2005
 janúar 30, 2005
 febrúar 06, 2005
 febrúar 13, 2005
 febrúar 20, 2005
 febrúar 27, 2005
 mars 06, 2005
 mars 13, 2005
 mars 20, 2005
 mars 27, 2005
 apríl 03, 2005
 apríl 10, 2005
 apríl 17, 2005
 apríl 24, 2005
 maí 01, 2005
 maí 08, 2005
 maí 15, 2005
 maí 22, 2005
 maí 29, 2005
 júní 05, 2005
 júní 12, 2005
 júní 19, 2005
 júní 26, 2005
 júlí 03, 2005
 júlí 10, 2005
 júlí 17, 2005
 júlí 24, 2005
 júlí 31, 2005
 ágúst 07, 2005
 ágúst 14, 2005
 ágúst 21, 2005
 ágúst 28, 2005
 september 04, 2005
 september 11, 2005
 september 18, 2005
 september 25, 2005
 október 02, 2005
 október 09, 2005
 október 16, 2005
 október 23, 2005
 október 30, 2005
 nóvember 06, 2005
 nóvember 13, 2005
 nóvember 20, 2005
 nóvember 27, 2005
 desember 04, 2005
 desember 11, 2005
 desember 18, 2005
 janúar 15, 2006
 janúar 22, 2006
 janúar 29, 2006
 febrúar 05, 2006
 febrúar 12, 2006
 febrúar 19, 2006
 febrúar 26, 2006
 mars 05, 2006
 mars 12, 2006
 mars 26, 2006
 apríl 02, 2006
 apríl 09, 2006
 apríl 16, 2006
 apríl 23, 2006
 maí 07, 2006
 maí 14, 2006
 maí 28, 2006
 júní 04, 2006
 júní 11, 2006
 júní 18, 2006
 júní 25, 2006
 júlí 02, 2006
 júlí 09, 2006
 júlí 16, 2006
 júlí 23, 2006
 júlí 30, 2006
 ágúst 06, 2006
 ágúst 13, 2006
 ágúst 20, 2006
 ágúst 27, 2006
 september 03, 2006
 september 10, 2006
 september 17, 2006
 október 01, 2006
 október 08, 2006
 október 15, 2006
 október 22, 2006
 nóvember 05, 2006
 nóvember 12, 2006
 nóvember 26, 2006
 desember 03, 2006
 desember 10, 2006
 desember 17, 2006
 desember 24, 2006
 janúar 07, 2007
 janúar 14, 2007
 janúar 21, 2007
 febrúar 04, 2007
 febrúar 11, 2007
 febrúar 18, 2007
 mars 04, 2007
 mars 11, 2007
 mars 25, 2007
 apríl 29, 2007
 maí 06, 2007
 maí 13, 2007
 maí 27, 2007
 júní 03, 2007
 júní 10, 2007
 júní 17, 2007
 júlí 22, 2007
 júlí 29, 2007
 ágúst 19, 2007
 september 02, 2007
 september 09, 2007
 september 23, 2007
 september 30, 2007
 október 07, 2007
 október 28, 2007
 nóvember 04, 2007
 nóvember 11, 2007
 nóvember 25, 2007
 desember 02, 2007
 desember 16, 2007
 janúar 27, 2008
 febrúar 03, 2008
 febrúar 10, 2008
 febrúar 24, 2008
 mars 09, 2008
 mars 16, 2008
 mars 23, 2008
 mars 30, 2008
 apríl 06, 2008
 maí 04, 2008
 maí 11, 2008
 maí 18, 2008
 maí 25, 2008
 júní 01, 2008
 júní 15, 2008
 júní 22, 2008
 ágúst 03, 2008
 ágúst 17, 2008
 
 | miðvikudagur, febrúar 27
          
          Sjúkrasagan mín15.febrúar fór ég í helgarferð til Köben og náði mér í einhverja flensu eða bronkítis var það víst með tilheyrandi hósta og hita.
 Á mánudeginum fór ég heim en var svo heima hóstandi með hita alla vikuna! Á miðvikudag fór ég loksins til heimilislæknisins þar sem ég var ennþá með hita og hósta og lét hún mig hafa lyfseðil upp á eitthvað sýklalyfslíki (er með pensilin ofnæmi). Sýklalyf eru jú alger ólyfjan svo þeim fylgir öllum aukaverkanirnar "magaverkir, ógleði og niðurgangur". Læknirinn sagði mér bara að dreifa skammtinum yfir daginn ef ég yrði mjög slæm í maganum.
 
 Á fimmtudag var ég búin að taka samtals 4 töflur af lyfinu og var orðin frekar slæm í maganum með verki og ógleði (sem betur fer ekki þriðju aukaverkunina). Eftir að Egill sofnaði skrapp Biggi út að skoða einhvern bíl og skiptir engum togum að mér SNARVERSNAR með hryllilega magaverki, þvílíka ógleði að ég hef ekki upplifað annað eins og uppköst (sem var auðvitað bara gall því ég hafði lítið sem engu komið niður). Ég hringdi í Bigga og náði að gubba uppúr mér (pun intended) að hann yrði að koma heim og skellti svo á hann. Hann hringir líka í mömmu og eftir einhverja stund eru þau bæði komin, stumrandi yfir mér. Ég var búin að ofanda í lengri tíma vegna ógleðinnar og treysti mér ekki til að standa upp, komin með doða í andlit og hendur og almennt bara aumingjaleg! Svo mamma ákveður að hringja á sjúkrabíl. Okkur datt helst í hug að ég væri með ofnæmi fyrir þessu lyfi líka.
 
 Jæja, sjúkrabíllinn kemur og ég er ennþá að drepast í maganaum og með þvílíka ógleði. Þá heyri ég útundan mér í einhverri konu:"Góða kvöldið, ég er hér blaðamaður frá Morgunblaðinu og við erum að fylgja sjúkrabílnum eftir, erum að gera grein um slysó. Mættum við nokkuð taka viðtal við hana á eftir, og taka myndir??".
 
 Týpískt að lenda í einhverju svona!! Ekki nóg með að ég var búin að vera veik í marga daga, búin að kasta upp og með ógleði, í einstaklega fallegum leggings og hlírabol með hárið skítugt og allt út í loftið (svona eins og maður er þegar maður er veikur), heldur var líka kominn blaðamaður og ljósmyndari til að festa ógeðið á filmu! Ég segi að þau megi taka viðtal og fylgjast með svosem, en ég vilji ekki láta taka myndir þar sem það sést hver ég er.
 
 Jæja, ég fer í sjúkrabílinn en er nú farið að líða örlítið betur þó ég sé enn slæm. Þegar við komum niður á Borgó og ég er hjóluð á börunum út úr bílnum heyri ég þvílíka myndavélasmelli og sé flass, engu líkara en að papparazzi væri á hælum mér! Jeij - GREAT!!!
 
 Sjúkrahúsferðin var nú ekki merkilegri en það að ég fékk saltvatn í æð (þegar þeim tókst að koma nálinni fyrir eftir margar stungur = 3 nála-marblettir), lungnamyndatöku (út af hóstanum) sem sýndi ekki neitt og svo ávísun á nýtt sýklalyf. En allan tíman var ég með blaðamanninn og ljósmyndarann á hælunum (hlaupandi á eftir rúllandi sjúkrahúsrúminu). Ég bað þau aftur um að taka ekki myndir af mér, en þau fengu leyfi til að taka myndir þar sem andlitið á mér sæist ekki. Svo voru auðvitað teknar nokkrar svona uppstilltar myndir með lækninum og hjúkkunni þar sem þau voru að "hlúa að mér", allt frekar kjánalegt eitthvað.
 
 Í bið eftir röntgen spurði svo blaðamaðurinn mig eitthvað út í veikindin og sýklalyfjaofnæmi og fleira:
 "Já, þú ert gift og ég sá heima hjá þér barnadót, hvað áttu mörg börn?"
 "Og hvenær byrjaðir þú að verða veik?"
 "Hvað með pensilinofnæmið, hvenær kom það í ljós?"
 
 ...og svo framvegis! Og ég ennþá í leggings, orðin "eign þvottahúss spítalanna" með brjóstin poppandi út því það vantaði eina tölu á besta stað á sjúkrahússkyrtunni.
 
 Þegar ég var orðin hressari, þó enn með saltvatn í æð, kom ljósmyndarinn og vildi endilega taka eina svona andlitsmynd af mér. Biggi og mamma voru bæði mætt á svæðið, Biggi auðvitað harðneitaði að vera með á mynd og ég vildi ekki láta taka mynd af mér."Jú jú, þú lítur mjög vel út", var viðkvæðið.
 
 Og helvítis myndin var á endanum tekin, þá hafði ég reyndar fengið nýjan spítalabol, en enn með hárið allt út í loftið og frekar veikindasjúskuð. Ljósmyndarinn sýndi mér myndina á myndavélaskjánum - EINMITT. Leit svona "rosalega vel út" með vibba hár, undirhöku og allar græjur. En ég tók bara Pollýönnu á þetta og ákvað að það fengist aldrei almennileg mynd af mér í þessu ástandi hvort eð er og leyfði þessu bara að flakka!
 
 Af veikindunum er það að frétta að þetta var bara svakalegt óþol við lyfinu sem lýsti sér í svona ýktum aukaverkunum, en ég hef ekkert fundið fyrir nýja lyfinu. Bara alveg TÝPÍSKT að lenda í svona!
 Efnisorð: veikindi StelpaLitla// Ýrr @ 13:30 þriðjudagur, febrúar 26
          
          Ho ho ho we say falskt falskt falskt!Þar sem ég fór á Hinn Íslenzka Þursaflokk á síðasta laugardag þá missti ég ef Eurovision keppninni góðu. Þetta var nú ansi tvísýnt með Merzedes Club annars vegar og Eurobandið hins vegar, en eftir að hafa séð keppnina nú á ruv.is þá sé ég að þetta hætti að vera tvísýnt í keppnninni á laugardag þar sem grey stelpan var RAMMFÖLSK!! :-S Æjæj. Við viljum ekki verða svona bretlandsfíaskó með falska söngvara og "Islande, 0 point"!!!
 
 Semsagt, mjög sátt við sigur Eurobandsins! :)
 
 Annars voru Þursa tónleikarnir ÞVÍLÍK SNILLD!! Við mamma dilluðum okkur í takt við kammersveitina og fagran söng Egils, það held ég nú. Mamma sagði mér líka einhverjar sögur frá gömlum tónleikum þegar þau pabbi voru grúppíur... nei segi svona. Mamma bauð mér semsagt á tónleikana þar sem pabbi komst ekki með. Gebbað.
 Efnisorð: Eurovision, Hinn Íslenzki Þursaflokkur StelpaLitla// Ýrr @ 16:23  
           | 
 Vondulagakeppnin
1. Basshunter: Boten Anna
2.David Hasselhoff: Jump In My Car3.Mervi Vesala: I wanna love you tender
4.Rick Dees: Disco Duck
5.NKOTB: Step by step
6.Tommy Seebach band: Apache 
7.Framsóknarsamba
8.Dennis Madalone: America We Stand As One
9.Daler Mehndi: Tunak Tunak Tun
 10. PWC og KPMG
 
 helstu einkenni tvíbura:
 
Léttleiki, heiðríkja og bjartsýni.Hressir, vingjarnlegir, málgefnir, forvitnir,
vakandi, gott minni
 koma oft vel fyrir sig orði,
 eirðarlausir, félagslyndir, fjölhæfir.
 Hafa þörf fyrir fjölbreytni,
 tvískiptir, óstundvísir, glaðlyndir, raunsæir,
stríðnir, fróðleiksfúsir, jákvæðir, gamansamir,
 eiga til að lofa upp í ermina á sér,
 hæfileiki til að gera margt á sama tíma.
 
 
    Sneddí linkarSellan.is
 Baggalutur.is
 Weebl and Bob
 Háskólakór
 Friendster.com
 
    
    Leikirdvergakast
 gull
              leikur
 bubbli
              leikur
 peningaleikur
 örkin
              hans nóa
 
 
     
  |